Klukkan slær Marvin sem klukkaður er.
Störfin fjögur sem sitja í huga mér er ég klukkaður var.
Versta vinnan án vafa er þegar ég vann í Hlaðdeildinni hjá Flugleiðum. Lítill svefnfriður, heimskt fólk og erfiðisvinna sem skók sálu mína. Hvernig get ég gleymt því þegar sagt var mig: Þú ert sennilega týpan sem fílar myndina með froskunum í. Auðvitað átti maðurinn við Magnolia. Eða þegar ég var böggaður fyrir að lesa góðar bækur eins og Kofa Tómasar Frænda, 1984, Animal Farm, Don Kíkóti og aðrar.
Ég hef unnið í Fríhöfninni í nokkur sumar. Einu sinni kom Hannes Hólmsteinn sérstaklega til mín og keypti blush, að mig minnir, og Capri. Ég klúðraði því að afgreiða hann því hann var fyrsti viðskiptavinurinn um klukkan sex á fyrstu vakt minni. Hannes var samt kúl á því. Hann fær kudos. Berlusconi gekk fram hjá mér. Hann er frekar lítill. Það tekur því varla fyrir hann að pissa standandi.
Ég vann hjá Glóðinni, sem er veitingastaður sem fór á hausinn á meðan ég var enn skegglaus.( Þetta er grín). Grískt grín... grín .
Ég vann einu sinni í loðnuvertíðinni fyrir Nintendo 64. Það geri ég aldrei aftur.
Fjórar kvikmyndir sem ég get horft aftur og aftur og aftur og aftur á?
Ósvífni.
Citizen Kane, Donnie Darko, Annie Hall, Barry Lyndon + þær 500 myndir á listanum mínum sem hægt er að nálgast á imdb.com undan nafninu marvin75. Alvöru samfélög krefjast þess að maður heiti svona heimskulegu nafni. Ég er nafn og númer, samt bara númer sem er samt nafn.
Krakkbæli sem ég hef búið í?
4+1, Ég er öðruvísi, so what. Victorville, Kalíforníu. Soesterburg, í Hollandi. Panama City, Flórída. Keflavík, í Keflavíkurlandi. Reykjavík, Ísland.
Forheimskandi imbakassinn Simpsons, Futurama, Seinfeld og Peep Show.
Opíumbæli: Ríó De Janeiró, Istanbúl, Samós, Genf.
Síðurnar urðu til þess að ég var nærsýnn.
perseus.tufts.edu imdb.com Linkfilter.net Milkandcookies.com Wikipedia.org
,,Fjórar" bækur sem ég hef lesið oft:
Jason, Shhhh The Wind up Bird Chronicles Catch 22 Catcher in Rye House of Leaves Plateró og ég Don Kíkóti Tómas Jónssson: Metsölubók
+ 500 aðrar bækur.
Ég vil búa í Star Wars heiminum, Middle Earth, Grikklandi hið forna og á miðöldunum.
Matur? Shake, grænmetishamborgar, pizza og lasagna + snobb grænmetisrétti. Ég klukka mömmu þína.
...posted by Marvin... at 8:02 PM...
|